Add parallel Print Page Options

26 Þér skuluð eigi gjöra yður falsguði, né heldur reisa yður skurðgoð eða merkissteina, og eigi setja upp myndasteina í landi yðar til þess að tilbiðja hjá þeim, því að ég er Drottinn, Guð yðar.

Mína hvíldardaga skuluð þér halda og fyrir mínum helgidómi lotningu bera. Ég er Drottinn.

Ef þér breytið eftir mínum setningum og varðveitið mínar skipanir og haldið þær,

þá skal ég jafnan senda yður regn á réttum tíma, og landið mun gefa ávöxt sinn og trén á mörkinni bera aldin sín.

Skal þá ná saman hjá yður þresking og vínberjatekja, og vínberjatekja og sáning, og þér skuluð eta yður sadda af brauði og búa öruggir í landi yðar.

Ég vil gefa frið í landinu, og þér skuluð leggjast til hvíldar og enginn skal hræða yður. Óargadýrum vil ég eyða úr landinu, og sverð skal ekki fara um land yðar.

Og þér skuluð elta óvini yðar, og frammi fyrir yður skulu þeir fyrir sverði hníga.

Og fimm af yður skulu elta hundrað, og hundrað af yður skulu elta tíu þúsundir, og óvinir yðar skulu frammi fyrir yður fyrir sverði hníga.

Ég vil snúa mér til yðar og gjöra yður frjósama og margfalda yður, og ég vil gjöra sáttmála minn við yður.

10 Og þér munuð eta fyrnt korn, gamlan forða, og þér munuð bera fyrnda kornið út fyrir hinu nýja.

11 Og ég mun reisa búð mína meðal yðar, og sál mín skal ekki hafa óbeit á yður.

12 Og ég mun ganga meðal yðar og vera Guð yðar, og þér skuluð vera mín þjóð.

13 Ég er Drottinn, Guð yðar, sem leiddi yður út af Egyptalandi, til þess að þér væruð eigi þrælar þeirra. Ég braut sundur ok-stengur yðar og lét yður ganga beina.

14 En ef þér hlýðið mér ekki og haldið ekki allar þessar skipanir,

15 og ef þér hafnið setningum mínum og sál yðar hefir óbeit á dómum mínum, svo að þér haldið ekki allar skipanir mínar, en rjúfið sáttmála minn,

16 þá vil ég gjöra yður þetta: Ég vil vitja yðar með skelfingu, tæringu og köldu, svo að augun slokkna og lífið fjarar út. Og þér skuluð sá sæði yðar til einskis, því að óvinir yðar skulu eta það.

17 Og ég vil snúa augliti mínu gegn yður, og þér skuluð bíða ósigur fyrir óvinum yðar, og fjandmenn yðar skulu drottna yfir yður, og þér skuluð flýja, þótt enginn elti yður.

18 En ef þér viljið þá enn ekki hlýða mér, þá vil ég enn refsa yður sjö sinnum fyrir syndir yðar.

19 Og ég vil brjóta ofurdramb yðar, og ég vil gjöra himininn yfir yður sem járn og land yðar sem eir.

20 Þá mun kraftur yðar eyðast til ónýtis, land yðar skal eigi gefa ávöxt sinn og trén á jörðinni eigi bera aldin sín.

21 Og ef þér gangið í gegn mér og viljið ekki hlýða mér, þá vil ég enn slá yður sjö sinnum, eins og syndir yðar eru til.

22 Og ég vil hleypa dýrum merkurinnar inn á meðal yðar, og þau skulu gjöra yður barnlausa, drepa fénað yðar og gjöra yður fámenna, og vegir yðar skulu verða auðir.

23 Og ef þér skipist ekki við þessa tyftun mína, heldur gangið í gegn mér,

24 þá vil ég einnig ganga gegn yður, þá vil ég einnig slá yður sjö sinnum fyrir syndir yðar.

25 Og ég vil láta sverð koma yfir yður, er hefna skal sáttmálans. Munuð þér þá þyrpast inn í borgir yðar, en ég vil senda drepsótt meðal yðar, og þér skuluð seldir í óvina hendur.

26 Þá er ég brýt staf brauðsins fyrir yður, munu tíu konur baka yður brauð í einum ofni og færa yður brauðið aftur eftir vigt, og þér munuð eta og ekki verða mettir.

27 Og ef þér hlýðið mér eigi þrátt fyrir þetta og gangið í gegn mér,

28 þá vil ég einnig ganga í gegn yður með þungri reiði og refsa yður sjö sinnum fyrir syndir yðar.

29 Og þér skuluð eta hold sona yðar, og hold dætra yðar skuluð þér eta.

30 Og ég vil leggja fórnarhæðir yðar í eyði og kollvarpa sólsúlum yðar og kasta hræjum yðar ofan á búkana af skurðgoðum yðar, og sálu minni mun bjóða við yður.

31 Og ég vil leggja borgir yðar í rústir og eyða helgidóma yðar og ekki kenna þægilegan ilm af fórnum yðar.

32 Og ég vil eyða landið, svo að óvinum yðar, sem í því búa, skal ofbjóða.

33 En yður vil ég tvístra meðal þjóðanna og bregða sverði á eftir yður, og land yðar skal verða auðn og borgir yðar rústir.

34 Þá skal landið fá hvíldarár sín bætt upp alla þá stund, sem það er í eyði og þér eruð í landi óvina yðar. Þá skal landið hvílast og bæta upp hvíldarár sín.

35 Alla þá stund, sem það er í eyði, skal það njóta hvíldar, þeirrar hvíldar, sem það eigi naut á hvíldarárum yðar, er þér bjugguð í því.

36 Og þá af yður, sem eftir verða, vil ég gjöra svo huglausa í löndum óvina þeirra, að þyturinn af fjúkandi laufblaði skal reka þá á flótta og þeir flýja eins og menn flýja undan sverði, og þeir skulu falla, þó að enginn elti.

37 Og þeir skulu hrasa hver um annan, eins og flýja skyldi undan sverði, þó að enginn elti, og þér skuluð eigi fá staðist fyrir óvinum yðar.

38 Og þér skuluð farast meðal þjóðanna, og land óvina yðar skal upp eta yður.

39 Og þeir af yður, sem eftir verða, skulu fyrir sakir misgjörðar sinnar veslast upp í löndum óvina yðar, og þeir skulu veslast upp sakir misgjörða feðra sinna eins og þeir.

40 Þá munu þeir játa misgjörð sína og misgjörð feðra sinna, er þeir frömdu með því að rjúfa tryggðir við mig, og hversu þeir hafa gengið í gegn mér _

41 fyrir því gekk ég og í gegn þeim og flutti þá í land óvina þeirra _, já, þá mun óumskorið hjarta þeirra auðmýkja sig og þeir fá misgjörð sína bætta upp.

42 Og þá vil ég minnast sáttmála míns við Jakob, og sáttmála míns við Ísak og sáttmála míns við Abraham vil ég einnig minnast, og landsins vil ég minnast.

43 Og landið skal verða yfirgefið af þeim og fá hvíldarár sín bætt upp, meðan það er í eyði og þeir eru á brottu, og þeir skulu fá misgjörð sína bætta upp fyrir þá sök og vegna þess, að þeir höfnuðu lögum mínum og sál þeirra hafði óbeit á setningum mínum.

44 En jafnvel þá, er þeir eru í landi óvina sinna, hafna ég þeim ekki og býður mér ekki við þeim, svo að ég vilji aleyða þeim og rjúfa þannig sáttmála minn við þá, því að ég er Drottinn, Guð þeirra.

45 Og sökum þeirra vil ég minnast sáttmálans við forfeður þeirra, er ég leiddi út af Egyptalandi í augsýn þjóðanna til þess að vera Guð þeirra. Ég er Drottinn."

46 Þetta eru setningar þær, ákvæði og lög, sem Drottinn setti milli sín og Ísraelsmanna á Sínaífjalli fyrir Móse.

Reward for Obedience

26 “‘Do not make idols(A) or set up an image(B) or a sacred stone(C) for yourselves, and do not place a carved stone(D) in your land to bow down before it. I am the Lord your God.

“‘Observe my Sabbaths(E) and have reverence for my sanctuary.(F) I am the Lord.

“‘If you follow my decrees and are careful to obey(G) my commands, I will send you rain(H) in its season,(I) and the ground will yield its crops and the trees their fruit.(J) Your threshing will continue until grape harvest and the grape harvest will continue until planting, and you will eat all the food you want(K) and live in safety in your land.(L)

“‘I will grant peace in the land,(M) and you will lie down(N) and no one will make you afraid.(O) I will remove wild beasts(P) from the land, and the sword will not pass through your country. You will pursue your enemies,(Q) and they will fall by the sword before you. Five(R) of you will chase a hundred, and a hundred of you will chase ten thousand, and your enemies will fall by the sword before you.(S)

“‘I will look on you with favor and make you fruitful and increase your numbers,(T) and I will keep my covenant(U) with you. 10 You will still be eating last year’s harvest when you will have to move it out to make room for the new.(V) 11 I will put my dwelling place[a](W) among you, and I will not abhor you.(X) 12 I will walk(Y) among you and be your God,(Z) and you will be my people.(AA) 13 I am the Lord your God,(AB) who brought you out of Egypt(AC) so that you would no longer be slaves to the Egyptians; I broke the bars of your yoke(AD) and enabled you to walk with heads held high.

Punishment for Disobedience

14 “‘But if you will not listen to me and carry out all these commands,(AE) 15 and if you reject my decrees and abhor my laws(AF) and fail to carry out all my commands and so violate my covenant,(AG) 16 then I will do this to you: I will bring on you sudden terror, wasting diseases and fever(AH) that will destroy your sight and sap your strength.(AI) You will plant seed in vain, because your enemies will eat it.(AJ) 17 I will set my face(AK) against you so that you will be defeated(AL) by your enemies;(AM) those who hate you will rule over you,(AN) and you will flee even when no one is pursuing you.(AO)

18 “‘If after all this you will not listen to me,(AP) I will punish(AQ) you for your sins seven times over.(AR) 19 I will break down your stubborn pride(AS) and make the sky above you like iron and the ground beneath you like bronze.(AT) 20 Your strength will be spent in vain,(AU) because your soil will not yield its crops, nor will the trees of your land yield their fruit.(AV)

21 “‘If you remain hostile(AW) toward me and refuse to listen to me, I will multiply your afflictions seven times over,(AX) as your sins deserve. 22 I will send wild animals(AY) against you, and they will rob you of your children, destroy your cattle and make you so few(AZ) in number that your roads will be deserted.(BA)

23 “‘If in spite of these things you do not accept my correction(BB) but continue to be hostile toward me, 24 I myself will be hostile(BC) toward you and will afflict you for your sins seven times over. 25 And I will bring the sword(BD) on you to avenge(BE) the breaking of the covenant. When you withdraw into your cities, I will send a plague(BF) among you, and you will be given into enemy hands. 26 When I cut off your supply of bread,(BG) ten women will be able to bake your bread in one oven, and they will dole out the bread by weight. You will eat, but you will not be satisfied.

27 “‘If in spite of this you still do not listen to me(BH) but continue to be hostile toward me, 28 then in my anger(BI) I will be hostile(BJ) toward you, and I myself will punish you for your sins seven times over.(BK) 29 You will eat(BL) the flesh of your sons and the flesh of your daughters.(BM) 30 I will destroy your high places,(BN) cut down your incense altars(BO) and pile your dead bodies[b] on the lifeless forms of your idols,(BP) and I will abhor(BQ) you. 31 I will turn your cities into ruins(BR) and lay waste(BS) your sanctuaries,(BT) and I will take no delight in the pleasing aroma of your offerings.(BU) 32 I myself will lay waste the land,(BV) so that your enemies who live there will be appalled.(BW) 33 I will scatter(BX) you among the nations(BY) and will draw out my sword(BZ) and pursue you. Your land will be laid waste,(CA) and your cities will lie in ruins.(CB) 34 Then the land will enjoy its sabbath years all the time that it lies desolate(CC) and you are in the country of your enemies;(CD) then the land will rest and enjoy its sabbaths. 35 All the time that it lies desolate, the land will have the rest(CE) it did not have during the sabbaths you lived in it.

36 “‘As for those of you who are left, I will make their hearts so fearful in the lands of their enemies that the sound of a windblown leaf(CF) will put them to flight.(CG) They will run as though fleeing from the sword, and they will fall, even though no one is pursuing them.(CH) 37 They will stumble over one another(CI) as though fleeing from the sword, even though no one is pursuing them. So you will not be able to stand before your enemies.(CJ) 38 You will perish(CK) among the nations; the land of your enemies will devour you.(CL) 39 Those of you who are left will waste away in the lands of their enemies because of their sins; also because of their ancestors’(CM) sins they will waste away.(CN)

40 “‘But if they will confess(CO) their sins(CP) and the sins of their ancestors(CQ)—their unfaithfulness and their hostility toward me, 41 which made me hostile(CR) toward them so that I sent them into the land of their enemies—then when their uncircumcised hearts(CS) are humbled(CT) and they pay(CU) for their sin, 42 I will remember my covenant with Jacob(CV) and my covenant with Isaac(CW) and my covenant with Abraham,(CX) and I will remember the land. 43 For the land will be deserted(CY) by them and will enjoy its sabbaths while it lies desolate without them. They will pay for their sins because they rejected(CZ) my laws and abhorred my decrees.(DA) 44 Yet in spite of this, when they are in the land of their enemies,(DB) I will not reject them or abhor(DC) them so as to destroy them completely,(DD) breaking my covenant(DE) with them. I am the Lord their God. 45 But for their sake I will remember(DF) the covenant with their ancestors whom I brought out of Egypt(DG) in the sight of the nations to be their God. I am the Lord.’”

46 These are the decrees, the laws and the regulations that the Lord established at Mount Sinai(DH) between himself and the Israelites through Moses.(DI)

Footnotes

  1. Leviticus 26:11 Or my tabernacle
  2. Leviticus 26:30 Or your funeral offerings