Add parallel Print Page Options

Elísa talaði við konuna, er soninn átti, sem hann hafði lífgað, á þessa leið: "Tak þig upp og far burt með fólk þitt og sest þú að einhvers staðar erlendis, því að Drottinn kallar sjö ára hallæri yfir landið, og er það þegar komið."

Þá tók konan sig upp og gjörði eins og guðsmaðurinn sagði, fór burt með fólk sitt og dvaldist sjö ár í Filistalandi.

Að sjö árunum liðnum kom konan aftur heim frá Filistalandi og lagði af stað til þess að biðja konung ásjár um hús sitt og akra.

Konungur var þá að tala við Gehasí, þjón guðsmannsins, og sagði: "Seg mér af öllum stórmerkjunum, sem Elísa hefir gjört."

Og er hann var að segja konungi, hvernig hann hefði lífgað hinn dána, þá kom konan, er soninn átti, sem hann hafði lífgað, og bað konung ásjár um hús sitt og akra. Þá sagði Gehasí: "Minn herra konungur! Þetta er konan, og þetta er sonur hennar, sá er Elísa lífgaði."

Konungur spurði konuna, og sagði hún honum frá. Fékk konungur henni einn af hirðmönnunum og sagði við hann: "Sjá þú um, að hún fái aftur allt, sem hún á, svo og allan afrakstur akranna frá þeim degi, er hún fór úr landi, allt til þessa dags."

Elísa kom til Damaskus. Þá lá Benhadad Sýrlandskonungur sjúkur. Og er honum var sagt: "Guðsmaðurinn er kominn hingað,"

þá sagði konungur við Hasael: "Tak með þér gjöf nokkra og far til fundar við guðsmanninn og lát hann ganga til frétta við Drottin, hvort ég muni aftur heill verða af sjúkleik þessum."

Hasael fór þá til fundar við hann og tók með sér gjöf nokkra, alls konar gersemar úr Damaskus, klyfjar á fjörutíu úlfalda. Og er hann kom, gekk hann fyrir hann og mælti: "Sonur þinn, Benhadad Sýrlandskonungur, sendir mig til þín og lætur spyrja: ,Mun ég aftur heill verða af sjúkleik þessum?"`

10 Elísa svaraði honum: "Far og seg honum: ,Víst munt þú heill verða,` þótt Drottinn hafi birt mér, að hann muni deyja."

11 Og guðsmaðurinn starði fram fyrir sig og skelfdist harla mjög og grét.

12 Þá sagði Hasael: "Hví grætur þú, herra minn?" Hann svaraði: "Af því að ég veit, hvílíkt böl þú munir búa Ísraelsmönnum. Þú munt leggja eld í víggirtar borgir þeirra, drepa æskumenn þeirra með sverði, slá ungbörnum þeirra niður við og rista á kvið þungaðar konur þeirra."

13 Hasael svaraði: "Hvað er þjónn þinn, hundurinn sá, að hann megi vinna slík stórvirki?" Þá mælti Elísa: "Drottinn hefir sýnt mér þig svo sem konung yfir Sýrlandi."

14 Síðan fór Hasael burt frá Elísa, og er hann kom til herra síns, sagði konungur við hann: "Hvað sagði Elísa við þig?" Hann svaraði: "Hann sagði mér að þú mundir áreiðanlega heill verða."

15 En daginn eftir tók Hasael ábreiðu, dýfði henni í vatn og breiddi hana yfir andlit honum, svo að hann kafnaði. Og Hasael tók ríki eftir hann.

16 Á fimmta ríkisári Jórams Akabssonar Ísraelskonungs varð Jóram Jósafatsson konungur í Júda.

17 Hann var þrjátíu og tveggja ára gamall, þá er hann varð konungur, og átta ár ríkti hann í Jerúsalem.

18 Hann fetaði í fótspor Ísraelskonunga, eins og Akabs ætt gjörði, því að hann var kvæntur dóttur Akabs. Þannig gjörði hann það, sem illt var í augum Drottins.

19 En Drottinn vildi ekki afmá Júda, vegna Davíðs þjóns síns, samkvæmt því, er hann hafði heitið honum, að gefa honum ávallt lampa fyrir augliti hans.

20 Á hans dögum brutust Edómítar undan yfirráðum Júda og tóku konung yfir sig.

21 Þá fór Jóram með öllu vagnliðinu yfir til Saír. Hann tók sig upp um nóttina og barði á Edómítum, sem héldu honum í herkví, svo og á foringjum vagnliðsins, og flýði liðið til heimkynna sinna.

22 Þannig brutust Edómítar undan yfirráðum Júda, og er svo enn í dag. Þá braust og Líbna undan um sama leyti.

23 Það sem meira er að segja um Jóram og allt sem hann gjörði, það er ritað í Árbókum Júdakonunga.

24 Og Jóram lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn hjá feðrum sínum í borg Davíðs. Og Ahasía sonur hans tók ríki eftir hann.

25 Á tólfta ríkisári Jórams Akabssonar Ísraelskonungs tók ríki Ahasía, Jóramsson Júdakonungs.

26 Ahasía var tuttugu og tveggja ára gamall, þá er hann varð konungur, og ríkti hann eitt ár í Jerúsalem. Móðir hans hét Atalía, sonardóttir Omrí Ísraelskonungs.

27 Hann fetaði í fótspor Akabs ættar og gjörði það sem illt var í augum Drottins, eins og ætt Akabs, því að hann var í mægðum við ætt Akabs.

28 Ahasía fór herför með Jóram Akabssyni í móti Hasael Sýrlandskonungi til Ramót í Gíleað, en Sýrlendingar særðu Jóram.

29 Þá sneri Jóram konungur aftur til þess að láta græða sár sín í Jesreel, þau er Sýrlendingar höfðu veitt honum við Rama, þá er hann barðist við Hasael Sýrlandskonung. En Ahasía Jóramsson Júdakonungur fór ofan til Jesreel til þess að vitja um Jóram Akabsson, af því að hann var sjúkur.

The Shunammite’s Land Restored

Now Elisha had said to the woman(A) whose son he had restored to life, “Go away with your family and stay for a while wherever you can, because the Lord has decreed a famine(B) in the land that will last seven years.”(C) The woman proceeded to do as the man of God said. She and her family went away and stayed in the land of the Philistines seven years.

At the end of the seven years she came back from the land of the Philistines and went to appeal to the king for her house and land. The king was talking to Gehazi, the servant of the man of God, and had said, “Tell me about all the great things Elisha has done.” Just as Gehazi was telling the king how Elisha had restored(D) the dead to life, the woman whose son Elisha had brought back to life came to appeal to the king for her house and land.

Gehazi said, “This is the woman, my lord the king, and this is her son whom Elisha restored to life.” The king asked the woman about it, and she told him.

Then he assigned an official to her case and said to him, “Give back everything that belonged to her, including all the income from her land from the day she left the country until now.”

Hazael Murders Ben-Hadad

Elisha went to Damascus,(E) and Ben-Hadad(F) king of Aram was ill. When the king was told, “The man of God has come all the way up here,” he said to Hazael,(G) “Take a gift(H) with you and go to meet the man of God. Consult(I) the Lord through him; ask him, ‘Will I recover from this illness?’”

Hazael went to meet Elisha, taking with him as a gift forty camel-loads of all the finest wares of Damascus. He went in and stood before him, and said, “Your son Ben-Hadad king of Aram has sent me to ask, ‘Will I recover from this illness?’”

10 Elisha answered, “Go and say to him, ‘You will certainly recover.’(J) Nevertheless,[a] the Lord has revealed to me that he will in fact die.” 11 He stared at him with a fixed gaze until Hazael was embarrassed.(K) Then the man of God began to weep.(L)

12 “Why is my lord weeping?” asked Hazael.

“Because I know the harm(M) you will do to the Israelites,” he answered. “You will set fire to their fortified places, kill their young men with the sword, dash(N) their little children(O) to the ground, and rip open(P) their pregnant women.”

13 Hazael said, “How could your servant, a mere dog,(Q) accomplish such a feat?”

“The Lord has shown me that you will become king(R) of Aram,” answered Elisha.

14 Then Hazael left Elisha and returned to his master. When Ben-Hadad asked, “What did Elisha say to you?” Hazael replied, “He told me that you would certainly recover.” 15 But the next day he took a thick cloth, soaked it in water and spread it over the king’s face, so that he died.(S) Then Hazael succeeded him as king.

Jehoram King of Judah(T)

16 In the fifth year of Joram(U) son of Ahab king of Israel, when Jehoshaphat was king of Judah, Jehoram(V) son of Jehoshaphat began his reign as king of Judah. 17 He was thirty-two years old when he became king, and he reigned in Jerusalem eight years. 18 He followed the ways of the kings of Israel, as the house of Ahab had done, for he married a daughter(W) of Ahab. He did evil in the eyes of the Lord. 19 Nevertheless, for the sake of his servant David, the Lord was not willing to destroy(X) Judah. He had promised to maintain a lamp(Y) for David and his descendants forever.

20 In the time of Jehoram, Edom rebelled against Judah and set up its own king.(Z) 21 So Jehoram[b] went to Zair with all his chariots. The Edomites surrounded him and his chariot commanders, but he rose up and broke through by night; his army, however, fled back home. 22 To this day Edom has been in rebellion(AA) against Judah. Libnah(AB) revolted at the same time.

23 As for the other events of Jehoram’s reign, and all he did, are they not written in the book of the annals of the kings of Judah? 24 Jehoram rested with his ancestors and was buried with them in the City of David. And Ahaziah his son succeeded him as king.

Ahaziah King of Judah(AC)

25 In the twelfth(AD) year of Joram son of Ahab king of Israel, Ahaziah son of Jehoram king of Judah began to reign. 26 Ahaziah was twenty-two years old when he became king, and he reigned in Jerusalem one year. His mother’s name was Athaliah,(AE) a granddaughter of Omri(AF) king of Israel. 27 He followed the ways of the house of Ahab(AG) and did evil(AH) in the eyes of the Lord, as the house of Ahab had done, for he was related by marriage to Ahab’s family.

28 Ahaziah went with Joram son of Ahab to war against Hazael king of Aram at Ramoth Gilead.(AI) The Arameans wounded Joram; 29 so King Joram returned to Jezreel(AJ) to recover from the wounds the Arameans had inflicted on him at Ramoth[c] in his battle with Hazael(AK) king of Aram.

Then Ahaziah(AL) son of Jehoram king of Judah went down to Jezreel to see Joram son of Ahab, because he had been wounded.

Footnotes

  1. 2 Kings 8:10 The Hebrew may also be read Go and say, ‘You will certainly not recover,’ for.
  2. 2 Kings 8:21 Hebrew Joram, a variant of Jehoram; also in verses 23 and 24
  3. 2 Kings 8:29 Hebrew Ramah, a variant of Ramoth